Um mig
Sigurjón Arnarson – Sissi
Ég hef starfað við ljósmyndun í meira en 25 ár og hef á þeim tíma haft tækifæri til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks og fyrirtækja. Ljósmyndun hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu og þótt tæknin hafi breyst mikið í gegnum árin er það enn það sama sem heillar mig mest, að ná góðri mynd af fólki.
Ég starfaði í um 17 ár hjá EXPO auglýsingastofu, þar sem ég tók þátt í fjölbreyttum verkefnum fyrir íslensk og alþjóðleg fyrirtæki, meðal annars Coca-Cola og ELKO. Þar fékk ég dýrmæta reynslu af auglýsingaljósmyndun, hugmyndavinnu og því hvernig ljósmyndir geta hjálpað fyrirtækjum að skapa sterka og trúverðuga ímynd.
Samhliða því hef ég starfað sjálfstætt sem ljósmyndari frá árinu 2000 og tekið að mér fjölbreytt verkefni fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Fólkið fyrir framan myndavélina
Ég hef alltaf haft sérstakan áhuga á portrettljósmyndun. Mér finnst skemmtilegt að vinna með fólki, kynnast því aðeins og finna réttu leiðina til að ná fram persónuleikanum í myndinni.
Gott portrett snýst að mínu mati ekki bara um rétta lýsingu, fallegan bakgrunn eða góða myndavél. Það snýst ekki síður um manneskjuna fyrir framan vélina.
Það eru ekki allir vanir því að láta mynda sig og margir finna fyrir ákveðinni óþægindatilfinningu þegar myndavélinni er beint að þeim. Þess vegna legg ég áherslu á afslappað andrúmsloft og góða samvinnu. Ég leiðbeini fólki í myndatökunni og gef okkur tíma til að finna það sem virkar best.
Markmiðið er að þú fáir myndir sem þú ert ánægður með, myndir sem sýna þig eins og þú vilt koma fram og þú getur notað með stolti.
Menntun og reynsla
Ég lauk sveinsprófi í ljósmyndun árið 2008 og hlaut meistarabréf í ljósmyndun árið 2022.
Árið 2025 lauk ég einnig kennslufræði fyrir starfsmenntakennara við Háskóla Íslands og öðlaðist kennsluréttindi. Ég hef meðal annars kennt ljósmyndun við Tækniskólann og hef mikinn áhuga á að miðla þekkingu minni og reynslu.
Auk ljósmyndunar hef ég starfað um árabil í flugi, bæði sem flugliði, yfirflugliði og við kennslu og þjálfun. Sú reynsla hefur kennt mér mikið um mannleg samskipti, samvinnu og mikilvægi þess að fólki líði vel í ólíkum aðstæðum.
Meira en bara ljósmynd
Í dag legg ég sérstaka áherslu á portrett- og ímyndarljósmyndun fyrir stjórnendur, sérfræðinga og fyrirtæki.
Mér finnst sérstaklega áhugavert að skapa myndir sem eru faglegar án þess að vera stífar, myndir sem hafa karakter og segja aðeins meira um manneskjuna en hefðbundin starfsmannamynd.
Hvort sem þig vantar eina góða portrettmynd eða heildstæða myndatöku fyrir fyrirtækið þitt, þá legg ég sömu áherslu á hvert verkefni: góða ljósmynd, vönduð vinnubrögð og ánægjulega upplifun.
Sissi
Ljósmyndari
