Persónuvernd
Þegar þú sendir fyrirspurn fær Sissi nafn þitt, netfang og þær upplýsingar sem þú gefur upp um verkefnið. Upplýsingarnar eru notaðar til að svara þér, gera tilboð og fylgja verkefninu eftir.
Cloudflare hýsir vefinn og geymir fyrirspurnir. Cloudflare Turnstile er notað til að verjast ruslpósti. Resend sendir afrit af fyrirspurninni í tölvupósti til Sissa. Afritið er varðveitt í pósthólfi hans. Grunnmælingar á heimsóknum, ef virkjaðar, eru unnar með Cloudflare Web Analytics.
Óstaðfestar fyrirspurnir eru hreinsaðar úr kerfinu eftir 180 daga og afhentar fyrirspurnir eftir eitt ár frá síðustu stöðubreytingu. Endurheimtargögn geta varðveist í allt að sjö daga til viðbótar. Þú getur óskað eftir aðgangi, leiðréttingu eða eyðingu upplýsinga með því að senda póst á sissi@sissi.is.